Mælifell

Mælifell ( N65’41.85-W15’17.98)

Mælifells er getið í gömlum heimildum sem eign Hofskirkju. Land Mælifells afmarkast af Selsá, Selá og Innri-Almenningsá, Bungu, Heljardalsfjöllum og Kistufelli. Land Mælifells er allnokkuð gróið, sumarhagi talinn vera fyrir 3-400 fjár og í jarðamati 1849 kemur fram að upprekstrargjald hafi verið 40 fiskar. Mælifell taldist nýbýli og var stofnað 1854 af Arngrími Jósefssyni, en byggingabréf var gefið út 26.janúar 1856. Arngrími var þó synjað um tíundar- og skattfrelsi sem hann taldi sig eiga rétt á skv. Nýbýlatilskipuninni frá 1776. Það var gert á þeirri forsendu að jörðin hefði verið nytjuð áður og greitt af henni afgjald. Á Mælifelli var búið með hléum til 1906 þegar þjóðhaginn Páll Jónsson flutti þaðan ásamt konu sinni Margréti Eiríksdóttur.

 

Mælifell

ÞJÓNUSTUAÐILAR

Mælifell
X