Hneflasel

6. Hneflasel
N65°10.19-W15°30.46

Bærinn var byggður úr landi Eiríksstaða 1847 um 3 km suðaustur af Heiðarseli og stóð í 575 metra hæð vestur af Ytri-Eiríksstaðahnefli. Nafnið bendir til þess að þar hafi verið sel fyrrum frá Eiríksstöðum. Frumbyggjar voru Oddur Sæbjörnsson fæddur á Jökuldal og ráðskona hans Helga Guðmundsdóttir, sem var ættuð af Jökuldal. Hneflasel fór í eyði við Öskjugosið 1875.

Hneflasel

ÞJÓNUSTUAÐILAR

Hneflasel
X