Desjamýri

Desjamýri (N65°36.79-W15°20.83)

Desjamýri (429 m) stendur á hæð utan við Arnarvatn við svokallaðan Desjamýrarlæk. Frumbyggjar voru Eymundur Arngrímsson, bóndi og meðhjálpari frá Hauksstöðum og kona hans Matthildur Sigurðardóttir frá Grímsstöðum. Þar er gott útsýni yfir grasi grónar mýrar og inn til fjalla. Hægt er að ganga frá Stíflunni við Arnarvatn og út að Desjamýri. Þá er betra að vera vel skóaður því ganga þarf yfir mýrar. Einnig er hægt að ganga upp frá Hauksstöðum og inn að Desjamýri. Það er mun erfiðari leið en býður upp á það að fara upp á Þverfellið í leiðinni. Þaðan er víðsýnt í allar áttir. Leiðin norðan við Þverfell er hluti af þjóðleiðinni frá Möðrudal út í Vopnafjörð. Desjamýri fór í eyði 1880.

Foss

ÞJÓNUSTUAÐILAR

Desjamýri
X