Magnahellir (N64°99.252-W15°71.683) // 0.5 klst.

Ekið frá Kárahnjúkastíflu eftir góðri jeppaslóð að norðan út Lambafell að krossgötum við Laugavelli. Farið er niður að bílaplani við Dimmugljúfur. Þar er upplýsingaskilti og upphaf merktrar gönguleiðar, sem liggur í Hafrahvamma og Magnahelli. Hólkurinn með gestabók og stimpli er í hellinum.
Það var siður Brúarbænda að fornu að hafa sauðfé sitt inni í hvömmum nokkrum við Jökulsá á vetrum í helli þeim, sem þar er og kallaður er Magnahellir. Tekur hann nafn af Magna, bónda, sem fyrrum bjó á Brú, og fann fyrstur upp á að hafa þar sauðfé á vetrum um tíma.
Sjá bækling með gönguleið hér.

ÞJÓNUSTUAÐILAR

X