Hestaferðir Húsey
Heimsókn í Húsey við Héraðsflóa er hrein náttúruupplifun. Hundruð sela liggja á eyrum í Jöklu, lómurinn verpir í tugatali, þarna er eitt stærsta kjóavarp í heimi og skúmurinn gerir reglulegar loftárásir á ferðamenn.
Best af öllu er að njóta einstakrar náttúrunnar af hestbaki en farið er reglulega í selaskoðun á hestabaki. Brottfarir eru daglega kl. 10 og kl. 17 og tekur um 2 klst. Nauðsynlegt er að hringja á undan sér. Einnig er boðið uppá lengri reiðtúra, 4 klst meðfram ánum eða tveggja daga reiðtúr í Galtastaði Fremri og til baka.
Húsey er fornfrægt býli á undirlendinu í millum tveggja fallvatna úti við Héraðsflóa, Jökulsár á Brú og Lagarfljóts. Býlið er einkum þekkt með þjóðinni fyrir náttúrufar og dýralíf, einkum seli, fugla og hreindýr. Líkast er Húsey einn fárra staða í víðri veröld þar sem unnt er að panta selaskoðun á hestbaki! Víðsýni frá Húsey er mikið og fagurt til allra átta.
ÞJÓNUSTUAÐILAR
Simi: +354 471 3010 or +354 694 3010
Vefur: www.huseyfarm.is
Netfang: husey@simnet.is
GPS Coordinates: 65° 37′ 55.9“ N, 14° 16′ 36.2“ W