Veitingastaður Lake hótels, Eldhúsið – Restaurant, hefur getið sér orðs og eru metnaður og alúð þar allsráðandi. Matargerðin er sprottin úr traustum hefðum, en hráefnin gjarnan sett í nýtt og framsækið samhengi. Hráefni er ætíð fyrsta flokks, að mestu íslenskt, gjarnan lífrænt og oft fengið úr næsta nágrenni, enda er leitast við að nýta og kynna afurðir úr héraði. Þriggja rétta kvöldverðurinn Beint frá býli er stolt eldhússins.

X