Egilsstaðastofa – Visitor Center
Egilsstaðastofa – Visitor Center, er staðsett við tjaldsvæðið á Egilsstöðum.
Sími: 470 0750
Netfang: info@visitegilsstadir.is
Samgöngur
Frítt í stætó innan Egilsstaða
Farnar eru sautján ferðir á dag. Ekið er á einum bíl alla virka daga og er lagt upp frá Fellabæ, eins og tímataflan tilgreinir.
Núverandi verktaki er fyrirtækið Sæti ehf sem er með netfangið hlynur@saeti.is og síma 867 0528
Íbúum Fljótsdalshéraðs gefst kostur á að nýta sér almenningssamgöngur í dreifbýli til og frá Brúarási, í tengslum við skólaakstur. Skólanemar ganga þó fyrir í þeim ferðum. Allar ferðir almenningssamgangna eru gjaldfrjálsar.
Áætlunarflug
Egilsstaðaflugvöllur er einn af fjórum alþjóðlegum flugvöllum á Íslandi og er eini íslenski flugvöllurinn utan Keflavíkur sem er opinn allan sólarhringinn. Völlurinn gegnir mikilvægu hlutverki sem varaflugvöllur fyrir flug á milli Evrópu og Íslands, Bandaríkjanna og Íslands og flug yfir Ísland. Flugvöllurinn er á Egilsstaðanesi, á bakka Lagarfljóts, mitt á milli Egilsstaða og Fellabæjar. Flugfélag Íslands flýgur frá Reykjavík til Egilsstaða alla daga ársins. Sjá flugáætlun hér.
Norræna
Ferjan Norræna býður upp á vikulegar siglingar á milli Danmerkur og Seyðisfjarðar með viðkomu í Færeyjum.
Bílaleigur
Það eru fjórar bílaleigur með starfsemi á Egilsstöðum.
Hertz, Egilsstaðarflugvelli, sími: 522 4050 / 858 0450 / 858 0455.
Netfang: egilsstadir@hertz.is
Bílaleiga Akureyrar, Lagarbraut 4 og Egilsstaðaflugvelli, sími: 461 6070.
Neyðarsími eftir lokun: 840 6070.
Netfang: egilsstadir@holdur.is
Avis, Egilsstaðaflugvelli, sími: 660 0623.
Netfang: egilsstadir@avis.is
Bugdet bílaleiga, Egilsstaðaflugvelli, sími: 660 0623.
Netfang: egilsstadir@budget.is
Áætlunarferðir strætó
Leið 56: Akureyri – Egilsstaðir og Egilsstaðir – Akureyri.
Á sumrin er farið daglega en 4 sinnum í viku yfir vetrartíman, sjá akstursáætlun hér.
SV-Aust.
Keyra um Austurland allt árið um kring, stoppistöðvar á: Borgarfirði, Seyðisfirði, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Eskifirði, Neskaupsstað, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði, Breiðdalsvík, Djúpavogi og Höfn.
Tímatafla og upplýsingar hér.