Rangalón

2. Rangalón
N65°17.64-W15°31.26

Bærinn stóð við norðurenda Sænautavatns og byggðist 1843 úr landi Möðrudals. Frumbyggjar voru Pétur Guðmundsson, Sögu- Guðmundar Magnússonar á Bessastöðum og Þorgerður Bjarnadóttir systir Kristrúnar á Sænautaseli. Val býlisstæðisins hafa ráðið sömu ástæður og á Sænautaseli, en einnig að býlið var í alfaraleið yfir Heiðina. Rangalón var í byggð til 1923. Nokkur síðustu árin, sem búið var á Rangalóni, var lagður styrkur úr Ríkissjóði til að halda þar við byggð vegna póstsamgangna. Rangalón (N65°17.64 – W15°31.26)

Rangalón

ÞJÓNUSTUAÐILAR

Rangalón
X