![](https://visitegilsstadir.is/wp-content/uploads/2020/05/Landsendi4a.jpeg)
Landsendi (N65° 43.352-W14°23.300) // 2 klst.
Gengið frá þjóðvegi (áður en haldið er upp á Hellisheiði) við Biskupshól (N65°42.52- W14°24.41). Þaðan er svo gengið að Keri sem er forn verstöð og út á Landsendahorn. Þar er afar fallegt útsýni yfir Móvíkur, tvær víkur sem eru næst fyrir utan Landsenda og mynda stórar geilar inn í strandfjöllin.
Ofan við þær eru um 2-300 m há björg og snarbrattar skriður, Móvíkurflug. Bergið í þeim er aðallega líparít sem skartar öllum regnbogans litum. Hólkur með gestabók og stimpli er á bakkanum fyrir ofan Ker.
Sjá bækling með gönguleið hér.
![](https://visitegilsstadir.is/wp-content/uploads/2020/05/Landsendi2a.jpeg)
![](https://visitegilsstadir.is/wp-content/uploads/2020/05/Landsendi1a.jpeg)
![](https://visitegilsstadir.is/wp-content/uploads/2020/05/Landsendi5a.jpeg)
ÞJÓNUSTUAÐILAR
![](https://visitegilsstadir.is/wp-content/uploads/2020/05/Landsendi3a.jpeg)
Simi: 4700750
Netfang: info@visitegilsstadir.is