Á Héraði eru nokkrir ferðaskipuleggjendur og ferðaskrifstofur sem fara í skipulagðar hestaferðir yfir sumartímann. Þessar ferðir eru í flestum tilfellum ætlaðar reyndum hestamönnum og geta verið frá nokkurra tíma langar upp í margra daga ferðir.
ÞJÓNUSTUAÐILAR
Denni og Arna hafa undanfarin ár farið með ótal ferðamenn í hestaferðir um óbyggðir Fljótsdalshéraðs. Ferðirnar eru 6 og 10 daga langar og því ætlaðar reyndum hestamönnum. Þau eru stofnendur Óbyggðasafns Íslands, Arna er sagnfræðingur og Denni kvikmyndagerðarmaður og þekkja þau svæðið og allar sögur og sagnir sem tengjast því mjög vel. Þú ert í góðum höndum í ferðunum þeirra um hálendið.
Hestaleiga er að Stóra-Sandfelli og er hægt að fara í skipulagðar eins- til fjögurra tíma ferðir um skóga, fjöll og dali. Vinsælir eru reiðtúrar inn í Hjálpleysu sem er djúpur, sagnaríkur og fagur eyðidalur. Einnig er vinsælt að bregða sér á bak í miðnæturtúra að sumarlagi.
Tjaldsvæðið og hestaleigan eru opin frá 1. júní – 15. september.
Gistiaðstaðan er opin frá 15. maí – 1. október.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.
Húsey er bær í Hróarstungu milli fljóta við Héraðsflóann og þar er rekin ferðaþjónusta. Á bænum er hægt að fara á hestbak og farnar eru bæði styttri og lengri ferðir. Í Húsey er líka hægt að komast í nágvígi við einstakt fuglalíf, hreindýrin koma stundum í heimsókn á svæðið og þar er hægt að skoða seli en það er einmitt í boði að fara í selaskoðun á hestabaki. Algjör paradís fyrir náttúru unnendur og heimsókn í Húsey er mögnuð upplifun.
Simi: +354 471 3010 or +354 694 3010
Vefur: www.huseyfarm.is
Netfang: husey@simnet.is
GPS Coordinates: 65° 37′ 55.9“ N, 14° 16′ 36.2“ W