Hólmavatn (N65°27.72-W15°22.09)
Var byggt hjá Langhólmavatni vestanverðu úr landi Skjöldólfsstaða 1861. Langhólmavatn (533 m) er í svonefndum Vatnaflóa í norðausturhluta Jökuldalsheiðar, sem nefndur hefur verið Tunguheiði. Á Hólmavatni var aðeins búið í 1 ár. Ábúendur voru Jóhannes Friðriksson, bónda á Fossi, Árnasonar og Kristbjörg Guðlaugsdóttir, systir Jóns í Ármótaseli.
ÞJÓNUSTUAÐILAR
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs – Tjarnarási 8 – 700 Egilsstaðir – (Pósthólf 154)
Simi: +354 863 5813
Vefur: www.ferdaf.is
Netfang: ferdaf@ferdaf.is
Netfang: info@visitegilsstadir.is