Laugarvalladalur er gróðurvin skammt vestan Jökulsár á Dal, um 20 km. norðan Kárahnjúka. Þar er unnt að lauga sig í heitum bæjarlæknum og skola svo af sér í náttúrulegu steypibaði þar sem lækurinn fellur fram af kletti í litlum fossi. Gæta skal sérstakrar varúðar vegna ofhitnunar vatnsins á úrkomulitlum tímum.

ÞJÓNUSTUAÐILAR

Simi: +354 471 2320 
Vefur: east.is

 

X