Spanarhóll (N65°15.588-W14°41.446) // 5 klst.

Spanarhóll er í norðurenda Fjórðungsháls 591 m. Ekið inn Fellin að Refsmýri. Gengið þaðan að Hlíðarseli og áfram upp gilið fyrir ofan rústirnar upp á Fjórðung á Fellaheiðinni. Þaðan er greið leið að Spanarhóli. Hólarnir eru fjórir og ætti fólk endilega að ganga að þeim öllum.
Einnig er hægt að fara á Spanarhól með því að ganga upp með Ormarsstaðaánni eða frá Fjallsseli upp á brún og svo inn eftir. Hólkurinn er á stærsta hólnum. Spanarhóll er vel þekktur huldufólksstaður en nafnið er líklega dregið af líkingu stuðlanna við tréspæni.

Sjá bækling með gönguleið hér.

ÞJÓNUSTUAÐILAR

X