Háreksstaðir

Háreksstaðir
N65°24.28 – W15°25.35

Byggðir úr landi Skjöldólfsstaða í 482 metra hæð og voru fyrsta býlið sem reist var í Heiðinni árið 1841. Talið er að þar hafi verið fornbýli. Háreksstaðir voru jafnan taldir eitt besta býlið í Heiðinni og fjölsetnasta, enda var graslendið þar hvað samfelldast og víðáttumest. Frumbyggjar voru Jón Sölvason, bónda á Víkingsstöðum í Skógum og Katrín Þorleifsdóttir, Þorleifssonar frá Stóru-Breiðvík í Reyðarfirði. Nokkrir af ábúendum Háreksstaða og afkomendur þeirra fluttu til Vesturheims. Búið var á Háreksstöðum samfellt til ársins 1924 utan eins árs sem býlið var í eyði. Þar er nú leitarmannaskýli.

Háreksstaðir

ÞJÓNUSTUAÐILAR

Háreksstaðir
X