Gestreiðarstaðir

Gestreiðarstaðir (N65°24.70-W15°30.18)

Byggðust úr landi Möðrudals árið 1843 um það bil 5 km fyrir vestan Háreksstaði. Talið er að þar hafi verið fornbýli. Frumbyggjar voru Andrés Andrésson, bónda í Hallfreðarstaðahjáleigu, Sturlusonar og Una Jensdóttir, bónda á Hrjót, Árnasonar. Jörðin var óbyggð í 4 ár eftir Öskjugosið en byggðist síðan aftur og voru nokkuð tíð ábúendaskipti enda jörðin vafalaust úr sér gengin eftir öskufallið. Einhverjir af ábúendunum fluttust til Vesturheims. Fór í eyði árið1897.

Gestreiðarstaðir

ÞJÓNUSTUAÐILAR

Gestreiðarstaðir
X