Finnsstaðir

Hestaleigan að Finnsstöðum státar af góðum hestum sem tölta fyrir eitt orð. Hvort sem þú ert vanur eða óvanur hestamaður eigum við rétta hestinn fyrir þig. Við ríðum út í litlum hópum og veljum reiðleið eftir stemmningu og veðri. Öll áhersla er lögð á örugga og ánægjulega upplifun manna og dýra.

 Húsdýragarðurinn að Finnsstöðum telur kindur og lömb, kýr og kálfa, svín og grísi, endur og andarunga, hesta, hænur og hana og er opinn alla daga frá 10 til 17 frá 1. maí til 30. september. Dýrin okkar eru hrifin af fólki, sérstaklega smáfólki, frá öllum heimshornum.

Finnsstaðir leigja út eitt einbýlishús á bænum. Húsið eru rúmgott og þægileg og búið öllum helstu þægindum, s.s. þvottavél og þurrkara, eldavél, örbylgjuofni, sjónvarpi og nettengingu. Fyrir utan bíður náttúran með ótal áhugaverðum gönguleiðum, húsdýragarði í hlaðinu og svo er stutt að renna inn á Egilsstaði ef eitthvað vantar.
– 7 manna bústaður með 3 svefnherbergjum, stofu og eldhúsi. Pallur með heitum potti, garðhúsgögnum og grilli.

Hjónin Sigurður Hlíðar Jakobsson og Helga Guðrún Sturlaugsdóttir, oftar Helga og Siggi, eru gestgjafar og bændur að Finnsstöðum. Helga er lyfjatæknir að mennt en hestamaður og gestgjafi að ástríðu. Siggi er vél- og þúsundþjalasmiður og talar íslensku og hestamál jöfnum höndum. Hann talar mikið með verkunum og fellur sjaldan verk úr hendi. Þegar þú rennur niður að Finnsstöðum tekur Helga mjög líklega á móti þér í hlaðvarpanum, glaðvær og einlæg, tilbúin að stjana við þig. Saman mynda Helga og Siggi fullkomið teymi og sjá til þess að heimsóknin þín að Finnsstöðum verði ánægjuleg og eftirminnileg.

ÞJÓNUSTUAÐILAR

Finnstaðavergur 2, 701 Egilsstaðir, Ísland

Simi : 892 18 03

https://www.finnsstadir.is/

 

X