Hafrahvammar / Dimmugljúfur (N64°99.252-W15°71.683)

Hafrahvammagljúfur á Austurlandi er með stærstu og stórfenglegustu gljúfrum landsins. Þar sem það er hæðst er það um 200 metrar og er gljúfrið um 8 kílómetrar að lengd. Falleg merkt gönguleið er meðfram gljúfrinu og niður að Magnahelli. Það þarf fjórhjóladrifsbíl til að keyra að gönguleiðinni en hægt er að sjá hluta gljúfursins frá Kárahjúkum og dugar venjulegur fólksbíll til að komast þangað. Þetta gljúfur lætur engan ósnortinn.

Til að komast þangað er ekið frá Kárahnjúkastíflu eftir góðri jeppaslóð að norðan út Lambafell að krossgötum við Laugavelli. Farið er niður að bílaplani við Dimmugljúfur. Þar er upplýsingaskilti og upphaf merktrar gönguleiðar, sem liggur niður í gljúfrið.

ÞJÓNUSTUAÐILAR

X