Tjaldsvæði og gönguleiðir

Hallormsstaðaskógur er talinn stærstur skóga á Islandi, um 740 ha. hann er að mestu náttúrulegur birkiskógur en gerðar hafa verið tilraunir með innfluttar tegundir allt frá 1905.

Skógurinn er vinsælt útivistarsvæði í fjölbreyttu landslagi. Í honum eru 11 merktar gönguleiðir. Gönguleiðakort er í kassa við upphaf allra gönguleiða, auk þess má nálgast kortið á Hótel Hallormsstað. Í skóginum er trjásafn með yfir 80 trjátegundum.

Fáðu göngukort af Hallormsstað hér.

 

Kringum sumarsólstöður ár hvert (21. júní) er haldinn í skóginum Skógardagurinn mikli þar sem m.a. er keppt um Íslandsmeistaratitil í skógarhöggi.
Í skóginum eru tvö tjaldsvæði: Atlavík í fallegri vík niður við Lagarfljótið umvafið birkiskógi og Höfðavík sem er nýlegt tjaldsvæði með hærra þjónustustig.
GPS N65 05.369 W14 46.035

 

ÞJÓNUSTUAÐILAR

 

X